ÚthverfalífiðJóhanna Valdís Torfadóttir

Ég er alveg að ná tökum á þessu úthverfalífi, orðin svaka virk í mömmu-starfsseminni hérna og bara einu skrefi frá því að gerast formaður foreldrafélagsins.... Nei lýg því nú, en hef haft nóg fyrir stafni síðustu vikuna og gengur vel að komast inn í "samfélagið" hérna. Það eru bumbu/mömmuhóps hittingar á mánudögum og þar er ég að kynnast Suðurnesjaskvísunum betur, sem ég er síðan búin að draga með mér á foreldramorgna á þriðjudögum. Ég dró að sjáfsögðu Bödda með mér, vitandi það að hann yrði líklega eini pabbinn á svæðinu en það vakti mikla lukku. Tongue out Þar kynntist ég líka einni sem benti mér á prjónahóp á fimmtudagsmorgnum og síðast en ekki síst, þá tókst Guggu vinkonu að draga mig á aðalfund systrafélagsins og er ég formlega gengin í systrafélagið (fyrir þá sem ekki vita, þá er þetta það sama og kvennfélag).

Fyndið hvað er stutt hérna á milli, en einhvern veginn finnst mér eins og ég hafi verið að flytja á milli heimsálfa, það hefur svo margt breyst. Ég bjó í Ytri-Njarðvík í 5 ár og kynntist engum þar, nema "heilsa út í búð" kynni við starfsfólkið á leiksólanum hennar Emilíu teljist með. Gugga vinkona hefur verið rosalega dugleg að koma mér inní hlutina hérna, eins og mömmumorgnana og systrafélagið og það er voðalega notalegt að hafa hana í næsta húsi og geta kíkt yfir eða fengið hana í kaffi án nokkurrar fyrirhafnar. Svo eru stelpurnar okkar orðnar svo góðar vinkonur líka.

Emilía hreinlega blómstrar hérna, nóg af krökkum að leika við og það er varla að ég sjái hana eftir skóla á daginn. Anítu virðist líka líða voða vel hérna og það er enginn smá munur að geta rúllað henni út að sofa í vagninum, hún sefur svo vel úti. Við fórum með dömurnar í myndatöku í síðustu viku og ég hreinlega get ekki beðið eftir að fá að sjá útkomuna. Þær stóðu sig báðar rosalega vel og mætti halda að Emilía Rós hafi setið fyrirsætunámskeið miðað við taktana Laughing

Það væri voða gaman ef þessi hafsjór að lesendum mínum myndi nú skilja eftir sig spor í gestabókinni eða athugasemdum hér að neðan.... Hahahaha who am I kidding ég er bara að tala við sjálfa mig hérna miðað við teljarann. Cool

RéttirJóhanna Valdís Torfadóttir

Það er alltaf jafn gaman að skella sér í réttir hjá M&P. Jóa frænda var reyndar sárt saknað, réttirnar eru einhvern veginn ekki þær sömu án kaldhæðnislegra athugsemda og illkvittinna skota hans, en hann var víst upptekinn í einhverri veiðiferð þessa helgina. Eins og á hverju ári er alltaf eitthvað um tilþrif að ýmsum toga, Ólöf systir reyndi að toppa "fórnað kúlinu" tilþrifunum frá því í fyrra en illa gekk að festa það á filmu og ég er nokkuð viss um að Jón Halldór bróðir hafi hreppt titilinn "óheppnasti smalinn" þetta árið, þar sem hann klemmdi sig á vigtinni, steig á nagla og fékk rollu í andlitið, allt sama daginn.

Það bætist líka alltaf í nýyrðahornið á hverju ári og þetta árið stendur "hún hljóp þarna til suðsuðvinstri" uppúr. Einhver ekki alveg klár á áttunum, því við vitum jú öll að vegurinn liggur til norðvestanhægri í sveitinni! Tongue out En eins og með margt annað þá er mikið um "had to be there" augnablik, en það var allavega mikið hlegið og haft gaman af vitleisunni sem vall uppúr leitarmönnum. Eins rifjuðum við reglulega upp beinþýddu tónleika Áslaugar og Jóa frænda frá því í fyrra þar sem "Engi ástarinnar, Hreinsað út úr skápnum og Undir pressu" hreinlega stálu senunni.

Þegar heim var komið var síðan pakkað af krafti því við fengum afhenta nýju íbúðina okkar á þriðjudagskvöldið og við náðum að flytja allt yfir á nokkrum klst með hjálp góðra vina, kærar þakkir til Svenna, Svenna, Áslaugar, Ólafar og Jóns. Og kærar þakkir fyrir afnotin af bílnum næstu daga á eftir Áslaug mín Kiss Það gengur vel að koma okkur fyrir í nýja húsnæðinu og ætla ég að reyna að klára það áður en helgargestirnir mínir (M&P) koma í kvöld, svo ég þurfi ekki að vera með allt í kössum yfir Ljósanótt.

Svekkelsi að trukkasýningin "trukkar og tæki" og Trukkakvöld Dóra tjakks lendi á sama dag/kvöld og aðalhátíðardag Ljósanætur, það hefur nú yfirleitt verið helgina eftir Ljósanótt, en ég get alltaf farið á næsta ári bara. Er fullviss um að Áslaug systir eigi eftir að "fill me in" af öllu trukkaslúðrinu eftir trukkaballið, Wink ég ætla hinsvegar bara að hafa það voðalega notalegt með Bödda og Anítu Ósk hérna heima, ætlum að fara í súpu til Guðnýjar frænku og taka smá rölt um bæinn og sjá flugeldasýninguna. Emilía Rós verður á hinu heimilinu um helgina, svo hún getur því miður ekki verið með okkur Cry

Gleðilega Ljósanótt öll

Á tímum FacebookJóhanna Valdís Torfadóttir

Sælt veri fólkið!

Alveg er ég búin að sannfærast um það að Facebook skemmi fyrir manni bloggið! Allir fá fréttirnar beint í æð á Facebook svo tilhvers að lesa bloggsíður, og þá hvers vegna að blogga? Fólk er hætt að hringja hvert í annað, því það getur lesið um daglegt líf hvers annars á Facebook og ég hef ekki ennþá lent í því, þegar maður rekst á gamlan kunningja út í búð og er að skiptast á fréttum, að annað láti ekki út úr sér við hitt "já ég sá það á Facebook!" Merkilegt alveg.

Sjálf var ég, eins og þið hafið flest líklega tekið eftir, hætt að blogga því maður var alltaf á Facebook og var líka við það að hætta að uppfæra síðun hjá litlu skvísunni minni, henni Emilíu Rós. Sem allir með Facebook vita að er nú orðin STÓRA skvísan mín, því önnur lítil prinsessa, Aníta Ósk, bættist í hópinn í sumar.

Eftir mikið og strembið reynerí, lyfjameðferðir og læknisrannsóknir fengum við Böddi þær fréttir í júlí í fyrra að við gætum ekki eignast börn saman hjálparlaust og bauðst okkur að skoða tækni/glasafrjóvgun hjá Art media. Það var auðvitað mikið áfall fyrir okkur bæði og það var í framhaldi af því sem fór að halla undan fæti hjá okkur og eins og fram kom í færslu frá mér í haust, þá hættum við saman fyrir rest. Eftir smá aðskilnað sáum við þó að okkur, settum þessa barnaörvæntinu til hliðar og reyndum að vinna í okkar málum. Nokkrum vikum síðar fengum við að sjá lítinn blikkandi hjartslátt í snemmsónar.

Ég hætti í skólanum um áramótin og fór að keyra á fullu hjá Teiti. Þeir voru svo góðir að ráða mig "í þessu ástandi" sem ég var búin að koma mér í. Ég var hjá þeim alveg fram í miðjan apríl, þangað til ég hætti að keyra af læknisráði. Þá tók við "biðin mikla" ef svo má að orði komast, því enn voru 3 mánuðir í settan dag. Ég var þó dugleg að dunda mig í "fríinu" og byrjaði m.a. að prjóna með hjálp Telmu vinkonu. Byrjaði á pínulítilli dúkkupeysu en kláraði síðn þrjár "full size" lopa peysur á okkur Bödda og Emilíu, fyrir settan dag.

Seinustu 2 vikurnar fyrir settan dag dvöldum við í góðu yfirlæti hjá Tengdó í Bolungarvík og það var alveg meiriháttar. Aníta kom í heiminn þann 19. júlí, á afmælisdaginn hennar Jóhönnu ömmu. Hún var skírð í kapellunni á spítalanum áður en við fórum heim. Aníta var vikugömul þegar við komum svo loksins heim í Njarðvík eftir langt og gott frí og erum við enn að koma heimilislífinu í réttar skorður aftur og fljótlega verður komin ágætis rútína hjá heimilisfólkinu. Emilía byrjar í skólanum eftir viku og ríkir mikil spenna á heimilinu yfir því.

Hér hefur aðeins verið stiklað á stóru en ég ætla að láta þetta nægja af fréttum af okkur í bili. Endilega skiljið eftir ykkur spor í gestabók eða í athugasemdum hér að neðan.

Sælt veri fólkiðJóhanna Valdís Torfadóttir

Lífið í Njarðvíkinni gengur sinn vanagang, allir dagar eins ef svo má að orði komast haha, vakna, bursta tennur, leikskólarölt/skutl (fer eftir aðstæðum) og svo læra :D Ég er í upplestrarfríi frá HÍ þessa vikuna og er svona að reyna mitt besta til að átta mig á efninu, les og les, en því miður situr allt of lítið eftir við allan þennan lestur. Ég brá þó á það ráð að prenta út fullt af gömlum prófum og rembist við að svara þeim til að fá meiri skilning á því sem ég er að gera, það er vonandi að það skili einhverjum árangri, þó svo á stundum finnst mér ég vera komin alla langt út fyrir efnið sem ég á að vera að lesa akkúrat núna.

Það er ótrúlegt hvað smávægilegar breytingar geta gert mikið fyrir mann, ég tók t.d. til í barnaherberginu um daginn, slaaaaaatti var settur í geymslu og svo breytti ég uppröðuninni á húsgögnunum lítilllega og Emilía hefur varla viljað koma fram úrt herberginu að tala við mig síðan! Alltof gaman að leika sér í "nýja" herberginu haha. Á móti kemur þó að hún gefur mér meiri tíma til að læra, þó svo ég reyni eftir fremsta megni að læra frekar á morgnanna svo ég hafi seinni partinn með henni.

Ég er ennþá að skutlast á rútunni inn á milli, yfirleitt bara vísindaferðirnar hjá HÍ, og ætla mér að reyna að gera það eins lengi og ég get eða hef tíma til. Fínt að fá smá aukapening í budduna. Svo er líka bara svo obbosslega gaman að keyra rútu :D

Auður tengdó sendi okkur Emilíu þessi fínu prjónavesti í síðustu viku og erum við báðar alveg í skýjunum. Ótrúlega kósý á köldum morgnum að hlýja sér í lopavestinu. Ég þurfti að slást við Emilíu til að fá að þvo vestið hennar um helgina, hún ætlaði sko EKKI úr því hahaha. Takk æðislega fyrir okkur Auður mín. Ég er svo ofboðslega rík að eiga góða að, svo á ég líka von á smá kjötsendingu frá m&p fljótlega, svo hér verð ég, á köldum vetrarkvöldum, í prjónavestinu mínu að elda nauta- og lambasteikur í öll mál hahahaha :D

Bið að heilsa í bili, megið endilega skilja eftir ykkur smá spor, í gestabókinni eða í athugasemdunum hér að neðan ;)

Jæja, seint koma færslur en koma þó!!!Jóhanna Valdís Torfadóttir

Sælt veri fólki!

Mér finnst það vera orðið frekar einkennandi í færslunum hjá mér undanfarið að um stórvægilegar breytingar sé að ræða (kenni facebook alfarið um, þar fær fólk fréttirnar um leið og þær gerast!) En af því tilefni er ég með enn eina tilkynninguna... Við Böddi ákváðum eftir mánaðar aðskilnað að þetta væri nú bara bull og vitleysa og höfum því tekið aftur saman. Laughing Við búum þó enn í sitthvoru lagi og ætlum að gera það í einhvern tíma, taka þetta bara einn dag í einu.

Námið hófst þann 1. september og óhætt að segja að það sé nóg að gera. Próf úr fyrsta námskeiði verður núna næstkomandi laugardag og ég er ekki frá því að ég sé að verða nett stressuð... það jú 80% fall í þessu námskeiði! Það er ekki það, ég hef stefnt á það frá fyrsta degi að vera í hópi hinna 20%. Undirbúningurinn gengur vonum framar og svo er bara að krossleggja alla fingur og tær um að það dugi til.

Flestar helgar septembermánaðar hafa verið frekar annasamar og ber þar helst að nefna Ljósanótt, trukkaball og afmælið hennar Jönu minnar, alveg hreint ógleymanlegt kvöld. Ég spjallaði við fyrrum vinnuveitandann minn hjá Teiti Jónassyni og fæ hjá þeim örlitla aukavinnu, hef verið að fara í vísindaferðir fyrir Háskólann og er alveg að njóta þess í botn að vera komin aftur á rútuna. Þannig get ég líka slegið tvær flugur í einu höggi, í staðin fyrir að borga fyrir að fara í vísindaferðir, þá fæ ég borgað fyrir að fara í vísindaferðir. Money mouth Fæ semc að skemmta mér með bekkjafélögunum á launum!

Deildin mín er frekar stór, eða 415 manns og ekki svo mikið sem EINN samnemenda minna úr Keili valdi þessa braut!!! Ég hef þó kynnst einni sem var í fjarnámi við Keili í fyrra og náum við nokkuð vel saman, sem er bara frábært. Ég fæ svo ennþá að hitta Keilisskruddurnar mínar a.m.k. einu sinni í mánuði, því það var samhljóða ákveðið af öllum hópnum, þar sem ENGIN okkar valdi sömu brautir/skóla, að fyrsta mánudag hvers mánaðar verður farið í lunch einhversstaðar á höfuðborgarsvæðinu. Seinast varð Ruby tuesday fyrir valinu og ég held að það sé óhætt að segja að starfsfólkið yrði yfir sig hrifið ef við myndum sleppa því að koma aftur!!! GOOD TIMES Tongue out

Ég hugsa að ég láti þetta nægja í bili og ætla mér engu að lofa um tímasetningu næstu færslu hehe þar sem það stenst ALDREI... Adios!

Tímamót...!Jóhanna Valdís Torfadóttir

Heil og sæl!!

Já ég er komin aftur að skjánum eftir vægast sagt viðburðaríkt sumarfrí. Við Böddi höfum ákveðið að slíta samvistum og erum við enn að fóta okkur í breyttum aðstæðum. Þar sem þetta er nýtilkomið þá vil ég biðja ykkur kæru lesendur að virða það og leyfa okkur að átta okkur áður en við förum að svara einhverjum spurningum.

En svo ég snúi mér nú að sumrinu þá hef ég verið að vinna hjá Verktökum Magna í sumar eða alveg fram undir verslunnarmanna helgi. Þá fór fyrirtækið í sumarfrí og mér var sagt að ég þyrfti ekki að koma aftur eftir það.

Við Böddi og Emilía nýttum tímann vel og ferðuðumst aðeins um landið. Við skelltum okkur á Hornstrandirnar, nánar tiltekið í Reykjarfjörð og dvöldum þar hjá ömmu hans og afa í nokkra daga. Þvílík náttúruperla og ofboðslega friðsæll staður. Verst hvað við fengum leiðinlegt veður allan tímann. Því næst var stefnan tekin austur á bóginn og við heimsóttum m&p í nokkra daga. Við enduðum fríið á ættarmóti hjá mömmu fjölskyldu, fyrsta sem hefur verið haldið þeim megin.

Nýja lífernið sem ég talaði um í síðustu færslu er komið eitthvað aðeins úr skorðum. Það virtist mjög auðvelt að gleyma hollustunni þegar við vorum í fríi, en ég vinn nú hörðum höndum að því að koma hlutunum í rétt horf aftur. Ég hef tekið nokkur hliðarspor í reykleysinu, sér í lagi í kring um allar breytingarnar í einkalífinu, en stefni á að halda mig á "beinu brautinni", sumir dagar eru bara erfiðari en aðrir.

Ég skellti mér í smalamennsku og réttir til m&p seinustu helgi og hafði ég mjög gott af því að komast aðeins út úr mínu daglega umhverfi og hugsa aðeins um sjálfa mig. Eins og vanalega í leitum var fullt af góðu fólki fyrir austan og ýmis ný tilþrif við smölun fengu að líta dagsins ljós. Ég tilnefni Ólöfu systir fyrir smalatilþrif þegar hún fórnaði cool-inu til að ná lambi á hlaupum... en rétt missti af því hahaha. Við fengum að sjá 2 mjög góð "fljúga á hausinn" tilþrif og verður erfitt að skera úr um það hvort það verði pabbi eða Siggi sem hreppi þann titilinn í ár. GOOD TIMES hahahaha. Hugsa að ég sjálf fái verðlaunin fyrir mestu sjáanlegu áverkana en hvað er svosem nýtt við það, þurfum ekkert að fara nánar út í það.

Nú líður senn að því að skólinn byrji og verður gaman að takast á við verkefni vetrarins... verður enn skemmtilegra að sjá hvernig ég ætla að fara að því að halda heimilinu gangandi þar sem framfærslan frá LÍN er ekki upp á marga fiskana. En á maður ekki bara að taka secret-ið á þetta og segja bara: "þetta reddast"!!!?

Leyfi ykkur að fylgjast með gangi mála ;)

Nýtt upphafJóhanna Valdís Torfadóttir

Jæja góðan daginn!!!

Komið langt síðan síðast og ýmislegt búið að ganga á síðan þá. Tongue out

Já útskriftardagurinn gekk í garð þann 6. júní síðastliðinn og var hann dásamlegur í alla staði. Ekki leiðinlegt frá því að segja að mér tókst að dúxa þetta með 9,04 í meðaleinkunn.Laughing Deginum eyddi ég síðan umkringd fjölskyldu og vinum og vorum við að langt fram á kvöld. Fékk sko aldeilis að finna fyrir því daginn eftir!

Nú það þýddi þó ekkert að slóra, við tók vinnan á mánudeginum og þrif og frágangur á Fífumóanum að vinnu lokinni. Svo var ekkert annað að gera en að pakka niður. Við fengum lánaðann verkstjórabílinn á föstudeginum og fluttum mest allt stóra dótið á föstudagskvöldið. Óli frændi kom og aðstoðaði okkur við þetta þyngst og þökkum við honum kærlega fyrir það, hann var líka sá eini sem nennti að hjálpa til. Við kláruðum síðan á laugardeginum og skiluðum bílnum aftur í bæinn.

Það vildi síðan svo "heppilega" til að Emilía Rós kom heim frá pabba sínum á mánudeginum með hlaupabóluna svo við mæðgur erum búnar að vera heima alla vikuna og gátum við nýtt tímann vel að taka uppúr kössum og koma okkur fyrir. Ég kláraði að þrífa á föstudagsmorguninn og við gátum skilað lyklunum seinnipart föstudags. Gott að vera búin að ljúka þessu af, þó svo að við hefðum tæknilega séð tíma út júní.

Við ákváðum að taka allverulega til í okkar málum í vikunni við Böddi og erum að reyna að hefja nýjan lífstíl. ég er t.d. búin að vera reyklaus núna í 6 daga og Böddi, hetjan mín, kominn úr tveimur pökkum á dag niður í það að hafa átt 1 pakka í tæpa 3 sólahringa. Það verður nú að teljast mjööööög gott! Við stefnum síðan á bústaðaferð næstu helgi og þá er markmiðið að hann verði alveg orðinn reyklaus. En það er ekki það eina sem við höfum verið að breyta heldur erum við líka að reyna að vinna að heilbrigðara mataræði og er t.a.m. nartað í grænmeti og ávexti hér allan daginn auk þess sem við reynum að hafa þessar þrjár megin máltíðir dagsins í hollari kantinum. Rosalega er maður nú fljótur að gleyma hvað það er gaman að dunda sér í eldhúsinu og hafa til matinn frá grunni.

Jæja gott fólk, ég kveð í bili og minni ykkur á að vera dugleg að kvitta fyrir komunni og/eða segja ykkar skoðun hér að neðan.

Líður að útskriftJóhanna Valdís Torfadóttir

Sælt verið fólkið... Þ.e.a.s. þessar fáu hræður sem lesa þetta hehe.

Já það er komið á hreint að ég kem til með að útskrifast með ágætum þann 6.júní næstkomandi og hlakka ég mikið til. Líður ótrúlega vel að vera búin með þennan áfanga, get sko sagt ykkur það að þetta var ekki auðveld ákvörðun síðasta haust og ég var alvarlega að spá í að hætta við á tímabili. Alltaf gaman að láta á það reyna hvað í manni býr.

Við Böddi rifum okkur loksins upp á rasshárunum núna fyrir helgi og máluðum íbúðina. Erum ekki alveg búin samt, það á eftir að mála 1 umferð á 3 veggi og síðan loftið, þá ætti þetta nú bara að vera komið. Óli frændi ætlar síðan að koma og hjálpa okkur að skipta um rafmagnstengi í íbúðinni, Böddi fór með honum um daginn að kaupa ný tengi og hugsa ég að það komi til með að líta mjög vel út þegar allt er orðið tilbúið. Við ætlum síðan að fjárfesta í veggljósum í stofuna líka... eitthvað sem er búið að vera á "the to do list" frá því ég keypti íbúðina hehe.

Ég byrjaði að vinna seinasta mánudag, en fékk þær fréttir á miðvikudag að það sé möguleiki á því að verkinu verði lokað næsta mánudag. Get ekki sagt að ég verði sérstaklega ánægð ef svo fer, ég hafnaði annari vinnu fyrir þessa og mér finnst það frekar skítt að yfirmaðurinn, sem vissi alveg hver staðan var, hafi ekki látið mann vita áður en ég byrjaði að vinna. Verð bara að vona það besta.

Jæja, læt þetta nægja í bili, ekki gleyma að kvitta fyrir komunni og/eða segja ykkar skoðun hér að neðan.

Er orðin svolítið spennt!!!!Jóhanna Valdís Torfadóttir

Jæja, þá líður að einkunna afhendingu og ég verð að viðurkenna að ég er orðin frekar spennt að sjá afrakstur vetrarins... það eru reyndar tvær einkunnir komnar í hús nú þegar, ég átti reyndar alls ekki von á þeim fyrr en á mánudaginn, en fékk allt í einu sms í dag: "Einkunnir komnar í stæ og dön, kemstu í tölvu?" Þær klikka sko ekki á því að láta mann vita vinkonurnar. Tongue out

Við familían skelltum okkur austur í sveitasæluna strax að loknu síðasta prófi og það er sko búið að vera nóg að gera hérna. Sauðburður í bullandi gangi. Við þurftum að taka tvö, splunkuný lömb með okkur inn í gær, mamman sinnti þeim ekki og þau voru að krókna úr kulda greyin, svo við skelltum þeim í bað, vöfðum þeim í flísteppi og gáfum þeim pela. Þau eru orðin eldhress núna, fengu að fara aftur til mömmu sinnar í gærkvöldi og hafa það bara gott. Alltaf svo gaman að dúllast svona.

Það líður senn að heimför hjá okkur, og þá tekur harkan við, ég byrja að vinna á mánudaginn, svo ætlum við að reyna að klára að græja íbúðina okkar svo við getum farið að undirbúa flutninga, þar að auki hef ég tekið að mér smá aukakennslu í stærðfræði fyrir eina vinkonuna, sem fer í prófið í byrjun júní. Síðast en ekki síst er það útskriftin, rétt rúmar tvær vikur!! Hlakka ekkert lítið til, en ætli það borgi sig nokkuð að fagna of snemma, best að bíða eftir restinni að einkununum, enn sem komið er lofar þetta góðu.Laughing

LokaprófinJóhanna Valdís Torfadóttir

Jæja gott fólk, var að labba út úr fyrsta lokaprófinu af fjórum. Mikið ofboðslega verð ég ánægð þegar þessari viku lýkur. Ekki nóg með það að þá verð ég (vonandi) búin með þennan áfanga, heldur er stefnan tekin á sveitasæluna beint eftir próf. Síðustu 2-3 vikur voru frekar strembnar, söguritgerðin tók sinn toll, en ég var auðvitað í samvinnu með svo miklum snillingi að við náðum að massa þetta á mettíma, þ.e.a.s. þegar við loksins byrjuðum, HaHa. Ofan á þetta stress var ég líka hálf vængbrotin því Emilía Rós fór í sveitina í 2 vikur og mömmuhjartað var frekar aumt á köflum.

Ég tók smá forskot á sæluna helgina fyrir afmælið mitt og skrapp austur í 3 daga til að hitta litlu sömuna og hjálpaði til í sauðburðinum. Böddi var heima á meðan og byrjaði á framkvæmdum í Fífumóanum. Við erum búin að komast að þeirri niðurstöðu að mála a.m.k. barnaherbergið og stofuna. Restin kemur svo bara seinna. Enn sem komið er fáum við ekkert að losna fyrr úr stúdentaíbúðinni, svo við höfum til 1. júlí að klára. Ótrúlegt samt hvað maður er fljótur að gleyma, það er svooooo leiðinlegt að mála!!!

En að mikilvægari málum... nú líður að útskrift og þá er spurning hvað skal gera í tilefni af því. Það er komið á hreint að við fáum að hafa húfur í útskriftinni og er ég mjög ánægð með það. Mér finnst það gera þennan áfanga meira "alvöru". Svo er það spurning að hafa bara nett kaffiboð fyrir m&p og co. strax eftir útskrift. Um kvöldið aftur á móti væri ég alveg  til í að lyfta mér örlítið upp... Allar tillögur vel þegnar.

Verið óhrædd að kvitta í gestabókina, og/eða í athugasemdirnar hér að neðan. Ég er farin að lesa undir próf!

Aðalvalmynd

Auglýsing

Klukkan

Könnun

Hvernig ertu að tækla kreppuna?

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...